Snittur og spjót
Tapassnitta með Andabringu
- 1stk. Andabringa
- 1stk. Baguettebrauð skorið í sneiðar
- Alioli sósa
- Salat
- Mandarínulauf
- Graslaukur
Aðferð
Sinarnar eru hreinsaðar af andabringunni, og rákir skornar í fituna. Nuddið salti í fiturákirnar og steikið á pönnu first á fituhliðinni þar til hún er gullinbrún og síðan létt á kjöthliðinni. Andabringan er svo elduð í ofni í 6 mínútur við 180 gráður. Alioli sósa er sett á brauðið, og það svo hulið með salati. Andabringan er skorin í mjög þunnar sneiðar og tveimur sneiðum raðað á hverja snittu. Mandarínulaufið er sett á miðja snittuna, og svo skreytt með graslauk.